
Síðustu ár hefur orðið bylting er varðar notkun skýjalausna (cloud based). Þar er stimpilklukku bransinn engin undantekning.
Stimpilklukkur í skýjalausn er hugbúnaðarlausn sem gerir fyrirtækjum kleift að halda utan um tímastimplun starfsmanna með veflausn sem er hýst á fjarlægum vefþjónum (remote server) frekar en á netþjónum inna fyrirtækisins.
Stimpilklukka í skýjalausn er oftast í formi skráningarstöð á vefformi. Margar lausnir bjóða svo einnig upp á að tengja “raun”tæki við kerfið sitt eins og t.d. lífkennatæki (biometrics).
Skýjalausnir gera notendum kleift að stimpla sig inn og út og vinna með skráningar nánast hvaðan sem er, svo lengi sem nettenging er til staðar..
Kostir:
- Oftast mjög einfalt í notkun
- Rafræn skráning
- Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
- Hægt að gera á frekar ódýran hátt
- Aðgengilegt nánast hvaðan sem er
Gallar:
- Lausnin er hýst annarsstaðar. Þú hefur því ekki fulla stjórn á kerfinu.