Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka – skýjalausnir (cloud based)

Síðustu ár hefur orðið bylting er varðar notkun skýjalausna (cloud based). Þar er stimpilklukku bransinn engin undantekning.

Stimpilklukkur í skýjalausn er hugbúnaðarlausn sem gerir fyrirtækjum kleift að halda utan um tímastimplun starfsmanna með veflausn sem er hýst á fjarlægum vefþjónum (remote server) frekar en á netþjónum inna fyrirtækisins.

Stimpilklukka í skýjalausn er oftast í formi skráningarstöð á vefformi. Margar lausnir bjóða svo einnig upp á að tengja “raun”tæki við kerfið sitt eins og t.d. lífkennatæki (biometrics).

Skýjalausnir gera notendum kleift að stimpla sig inn og út og vinna með skráningar nánast hvaðan sem er, svo lengi sem nettenging er til staðar..

Kostir:

  • Oftast mjög einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að gera á frekar ódýran hátt
  • Aðgengilegt nánast hvaðan sem er

Gallar:

  • Lausnin er hýst annarsstaðar. Þú hefur því ekki fulla stjórn á kerfinu.
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka með skönnun tanna

Það færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar stimpilklukkur er annarsvegar.

Nýjustu fréttir af þeim vettvangi herma að verið sé að skoða “skönnun” tanna í þeim tilgangi að auðkenna einstakling.

Enn er þetta þó á prófunarstigi og því ekki neinar lausnir komnar á markað. Skemmtileg hugmynd, þó ekki sé víst að þetta spili vel með algengri notkun andlitsgríma.

Þessi lausn yrði þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Eingöngu þarf að „brosa“ í þar til gert tæki sem „þekkir“ þannig viðkomandi og skráning á sér stað.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Kostir:

  • Oftast mjög einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að gera á frekar ódýran hátt
  • Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum

Gallar:

  • Sérsmíðaður búnaður getur verið frekar dýr
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka með NFC (near field communication)

nfctagsMeð tilkomu snjallsíma og spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi stimpilklukkur.

Í  mörgum þessara tækja er búnaður sem virkar með NFC (near field communication).

NFC stendur fyrir „nálæg samskipti“ og má segja að það sé einskonar nándarskynjun með möguleika á meiri samskiptum.

Þetta gefur möguleika á að láta tvö tæki „tala saman“ auk þess að geta notað svokölluð TAGs. TAG geta verið á ýmsu formi, sem kort, miðar, lyklakippur og margt fleira. Þau þjóna þá svipuðu hlutverki og aðgangskort og slíkt hafa í dag.

Þannig má nýta þessa tækni í stimpilklukkur á margan hátt. Með þar til gerðu Appi, eða í gegnum vefsíðu. Ýmsar útfærslur mögulegar.

Einn möguleiki er svo til viðbótar í þeim tækjum sem eru með staðsetningarbúnað í sér, þ.e. að láta þau um leið skrá staðsetningu viðkomandi. Þannig er þá vitað hvar starfsmaður er þegar hann/hún skráir sig í/úr vinnu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður
  • Einstaklega þægilegt fyrir starfsfólk

Gallar:

  • Notandi þarf að hafa annaðhvort snjalltæki eða TAG á sér.
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka í iPhone/iPad

iphoneklukkaMeð tilkomu Iphone síma og Ipad spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi stimpilklukkur.

Hægt er að fara tvær leiðir varðandi skráningu með slíkum tækjum. Önnur er sú að nota einfaldlega stimpilklukku í gegnum heimasíðu. Hin leiðin er að nota þar til gert App til að skrá sig í gegnum.

Einn möguleiki er svo til viðbótar í þeim tækjum sem eru með staðsetningarbúnað í sér, þ.e. að láta þau um leið skrá staðsetningu viðkomandi. Þannig er þá vitað hvar starfsmaður er þegar hann/hún skráir sig í/úr vinnu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður
  • Einstaklega þægilegt fyrir starfsfólk

Gallar:

  • Ef ekki er staðsetningarbúnaður í tæki þá getur starfsmaður skráð sig hvaðan sem er.
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka í Android síma/spjaldtölvu

androidklukkaMeð tilkomu Android síma og spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi stimpilklukkur.