Categories
Stimpilklukkur

Síma stimpilklukka

simaklukkaMjög algengt form á stimpilklukkum í dag er að notast við venjuleg símtæki. Þá er hringt í ákveðið númer, starfsmannanúmer slegið inn og skráð þannig.

Á mannmörgum vinnustöðum er jafnvel símtæki eingöngu ætlað til þessara nota við innganga á vinnustaðinn.

Það eru mjög margir sem bjóða upp á þessa gerð stimpilklukkna enda er hér um mjög þægilegan kost að ræða með tiltölulega litlum stofnkostnaði.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður

Gallar:

  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út
Categories
Stimpilklukkur

Vefstimpilklukka

vefklukkaÞað er stöðugt að fjölga í þeim hópi fyrirtækja sem nýta sér stimpilklukkur á vefformi þar sem starfsmaður slær inn auðkennisnúmer sitt, annaðhvort á takkaborð eða á snertiskjá.

Þessi lausn er afskaplega þægileg á margan hátt. Mjög fljót í uppsetningu og mikill sveigjanleiki varðandi breytingar. Allar skráningar skrást miðlægt og er úrvinnsla á upplýsingum þægileg og aðgengileg nánast hvaðan sem er.

Oftast eru þessar lausnir seldar í áskrift. Það þýðir að stofnkostnaður er yfirleitt mjög lítill.

Margir aðilar bjóða upp á stimpilklukku í gegnum heimasíðu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er

Gallar:

  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka með æðaskönnun

aedaskanniÞað færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar stimpilklukkur eru annarsvegar. Ein nýjasta lausnin í þessu er æðaskönnun (vein).

Þessi lausn er þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Fingur eða lófi er lagður yfir þar til gert tæki og það „les“ síðan æðarnar og „þekkir“ þannig viðkomandi.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Æðaskönnun er frekar ný aðferð í þessum geira. Búnaðurinn er enn í dag frekar dýr. Oftast er um að ræða skanna sem tengdir eru við tölvu.

Kostir:

  • Oftast mjög einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Ein öruggasta lausnin í boði í dag
  • Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum

Gallar:

  • Töluverður byrjunarkostnaður
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka með andlitsskönnun

andlitsskanniÞað færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar stimpilklukkur eru annarsvegar. Í mörgum tilvikum er notast við andlitsskönnun (face recognition).

Þessi lausn er þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Eingöngu þarf að „horfa“ í þar til gert tæki sem „þekkir“ þannig viðkomandi og skráning á sér stað.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Stimpilklukka með andlitsskönnun getur verið ein ódýrasta lífkennalausnin í dag. Hægt er að gera þetta með venjulegri tölvu og vefmyndavél. Þá er notast við þar til gerðan hugbúnað. Einnig er hægt að fá stimpilklukkur sem eru ætlaðar til svona skráninga.

Kostir:

  • Oftast mjög einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að gera á frekar ódýran hátt
  • Þarf ekki að muna eftir korti og/eða tölum

Gallar:

  • Sérsmíðaður búnaður getur verið frekar dýr
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka með augnskönnun

augnskanniÞað færist í aukana að notast við lífkenni (biometrics) þegar stimpilklukkur eru annarsvegar. Í mörgum tilvikum er notast við augnskönnun.

Þessi lausn er þægileg í notkun, ekki þarf að muna neinar tölur eða passa að gleyma ekki kortinu sínu. Eingöngu þarf að „horfa“ í þar til gert tæki sem „þekkir“ þannig viðkomandi og skráning á sér stað.

Í lífkennalausnum vinna tækin yfirleitt þannig að þau búa til auðkenni sem síðan er vistað í tækinu. Þau geyma því ekki mynd af lífkenninu sjálfu. Úr þessu auðkenni er ómögulegt að endursmíða lífkennið sjálft. Þetta er grundvallaratriði varðandi persónuvernd.

Langoftast er augnskannalausnin notuð með sérsmíðuðum stimpilklukkum en það er þó hægt að notast við venjulega tölvu líka. Þá er augnskanni tengdur við hana.