Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka með NFC (near field communication)

nfctagsMeð tilkomu snjallsíma og spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi stimpilklukkur.

Í  mörgum þessara tækja er búnaður sem virkar með NFC (near field communication).

NFC stendur fyrir „nálæg samskipti“ og má segja að það sé einskonar nándarskynjun með möguleika á meiri samskiptum.

Þetta gefur möguleika á að láta tvö tæki „tala saman“ auk þess að geta notað svokölluð TAGs. TAG geta verið á ýmsu formi, sem kort, miðar, lyklakippur og margt fleira. Þau þjóna þá svipuðu hlutverki og aðgangskort og slíkt hafa í dag.

Þannig má nýta þessa tækni í stimpilklukkur á margan hátt. Með þar til gerðu Appi, eða í gegnum vefsíðu. Ýmsar útfærslur mögulegar.

Einn möguleiki er svo til viðbótar í þeim tækjum sem eru með staðsetningarbúnað í sér, þ.e. að láta þau um leið skrá staðsetningu viðkomandi. Þannig er þá vitað hvar starfsmaður er þegar hann/hún skráir sig í/úr vinnu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður
  • Einstaklega þægilegt fyrir starfsfólk

Gallar:

  • Notandi þarf að hafa annaðhvort snjalltæki eða TAG á sér.
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka í iPhone/iPad

iphoneklukkaMeð tilkomu Iphone síma og Ipad spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi stimpilklukkur.

Hægt er að fara tvær leiðir varðandi skráningu með slíkum tækjum. Önnur er sú að nota einfaldlega stimpilklukku í gegnum heimasíðu. Hin leiðin er að nota þar til gert App til að skrá sig í gegnum.

Einn möguleiki er svo til viðbótar í þeim tækjum sem eru með staðsetningarbúnað í sér, þ.e. að láta þau um leið skrá staðsetningu viðkomandi. Þannig er þá vitað hvar starfsmaður er þegar hann/hún skráir sig í/úr vinnu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður
  • Einstaklega þægilegt fyrir starfsfólk

Gallar:

  • Ef ekki er staðsetningarbúnaður í tæki þá getur starfsmaður skráð sig hvaðan sem er.
Categories
Stimpilklukkur

Stimpilklukka í Android síma/spjaldtölvu

androidklukkaMeð tilkomu Android síma og spjaldtölva hafa opnast áhugaverðir möguleikar varðandi stimpilklukkur.

Hægt er að fara tvær leiðir varðandi skráningu með slíkum tækjum. Önnur er sú að nota einfaldlega stimpilklukku í gegnum heimasíðu. Hin leiðin er að nota þar til gert App til að skrá sig í gegnum.

Einn möguleiki er svo til viðbótar í þeim tækjum sem eru með staðsetningarbúnað í sér, þ.e. að láta þau um leið skrá staðsetningu viðkomandi. Þannig er þá vitað hvar starfsmaður er þegar hann/hún skráir sig í/úr vinnu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Getur verið tiltölulega lítill stofnkostnaður
  • Einstaklega þægilegt fyrir starfsfólk

Gallar:

  • Ef ekki er staðsetningarbúnaður í tæki þá getur starfsmaður skráð sig hvaðan sem er.
Categories
Stimpilklukkur

Vefstimpilklukka

vefklukkaÞað er stöðugt að fjölga í þeim hópi fyrirtækja sem nýta sér stimpilklukkur á vefformi þar sem starfsmaður slær inn auðkennisnúmer sitt, annaðhvort á takkaborð eða á snertiskjá.

Þessi lausn er afskaplega þægileg á margan hátt. Mjög fljót í uppsetningu og mikill sveigjanleiki varðandi breytingar. Allar skráningar skrást miðlægt og er úrvinnsla á upplýsingum þægileg og aðgengileg nánast hvaðan sem er.

Oftast eru þessar lausnir seldar í áskrift. Það þýðir að stofnkostnaður er yfirleitt mjög lítill.

Margir aðilar bjóða upp á stimpilklukku í gegnum heimasíðu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er

Gallar:

  • Hægt að nálgast nánast hvaðan sem er
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út