Categories
Stimpilklukkur

Hvernig fer skráning fram?

Einfaldasta tækið til skráningar inn og úr vinnu er á myndinni hér fyrir neðan:

pappirblyantur

Já, það þarf ekkert fleira til að skrá sig inn og úr vinnu!

Reyndin er hinsvegar sú að ráðlegast er að nota aðrar aðferðir sem skila meiri nákvæmni. Það er á endanum hagur bæði starfsfólks og vinnuveitanda.

Categories
Stimpilklukkur

Hvað er stimpilklukka?

Stimpilklukka er orð sem notað er yfir tæki sem hægt er að nota til að skrá sig inn og út úr vinnu.

Að kalla slíkt tæki stimpilklukku getur verið svolítið villandi í dag þar sem margar af þeim lausnum sem í boði eru vinna á allt annan hátt en gömlu góðu stimpilklukkurnar gerðu (og gera enn).

Orðið sjálft, stimpilklukka, varð til þar sem skráningartækin sjálf voru oftar en ekki klukkur, hangandi á vegg.

Skráningarferlið:

Starfsmaður skráir sig inn til vinnu þegar mætt er og út aftur þegar hætt er. Oft er líka skráð þegar farið er í matartíma eða jafnvel skráð inn í mismunandi verkefni (verkskráning).

Categories
Stimpilklukkulausnir Stimpilklukkur

Velkomin(n)

Velkomin(n) á stimpilklukka.is

Hér verður að líta hinar ýmsu upplýsingar er varða skráningar á vinnutíma þ.e.a.s. stimpilklukkur, skráningarlausnir og þessháttar.

Farið er í aðferðir í boði, kosti þeirra og galla.

Njótið vel.