Categories
Stimpilklukkur

Korta stimpilklukka

kortaklukkaMjög algengt er að notast við stimpilklukkur þar sem starfsmaður notar kort. Það geta ýmist verið svokölluð nándarkort, strikamerkjakort eða segulrandakort.

Oftast er notast við sérstakar stimpilklukkur til verksins en einnig er mögulegt að notast við venjulegar tölvur. Er þá tengdur lesari við tölvuna sem getur skannað kortin.

Það er gríðarlegt úrval til af tækjum og lausnum í þessa notkun. Enda eitt algengasta formið á skráningu í dag, ásamt skráningu með innslætti. Oft er þessu reyndar blandað saman þ.e. bæði notast við kort og staðfestingu með númerainnslætti.

Hægt er að fá lausnir þar sem einungis er safnað skráningum í stimpilklukkunni sjálfri og þær síðan teknar reglulega til úrvinnslu. Einnig er hægt að fá lausnir þar sem skráningar safnast sjálfkrafa miðlægt til úrvinnslu.

Þetta er mjög sniðug lausn ef fyrirtæki er í aðgangsstýrðu húsnæði. Þá er hægt að fá sér lausn sem notar sömu kort og eru notuð í aðgangskerfinu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu
  • Sæmilega öruggt ef kort eru ekki geymd á sameiginlegum stað

Gallar:

  • Getur verið töluverður byrjunarkostnaður
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út ef kort eru á sameiginlegum stað
Categories
Stimpilklukkur

Skráning með innslætti

InnsláttarklukkaMjög algengt form við inn- og útskráningar í dag er að notast við skráningastöðvar þar sem starfsmaður slær inn auðkennisnúmer sitt, annaðhvort á takkaborð eða á snertiskjá.

Allur gangur er á því hvort notast er við sérstakar skráningastöðvar eða einfaldlega venjuleg tölva notuð til verksins, nú eða jafnvel gsm sími.

Það er gríðarlegt úrval til af tækjum og lausnum í þessa notkun. Enda eitt algengasta formið á stimpilklukkum í dag, ásamt stimpilklukkum með kortum.

Hægt er að fá lausnir þar sem einungis er safnað skráningum í stimpilklukkunni sjálfri og þær síðan teknar reglulega til úrvinnslu. Einnig er hægt að fá lausnir þar sem skráningar safnast sjálfkrafa miðlægt til úrvinnslu.

Kostir:

  • Oftast frekar einfalt í notkun
  • Rafræn skráning
  • Engin spjöld eða kort sem þarf að hafa á sér
  • Býður upp á einfaldleika og sjálfvirkni við úrvinnslu

Gallar:

  • Getur verið töluverður byrjunarkostnaður
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út
Categories
Stimpilklukkur

Spjaldastimpilklukka

Spjaldaklukka

Ein leið til að skrá sig inn og út úr vinnu er með notkun spjaldastimpilklukku. Þá er klukka á staðnum sem hefur búnað til að ýmist stimpla á þar til gerð spjöld eða gata þau á vissan hátt.

Þannig bætist smátt og smátt á spjaldið upplýsingar um inn- útskráningar.

Hver starfsmaður hefur yfirleitt eitt spjald í notkun á hverjum tíma. Þegar spjaldið er orðið fullt, eða tímabilið sem það á að nota í er liðið, þá tekur starfsmaður nýtt spjald og tækið skráir á það.

Þetta er einfalt form og þægilegt á meðan ekki eru of margir að nota þessa lausn. Það getur hinsvegar verið töluvert verk að vinna úr upplýsingunum á þessum spjöldum og gera klárt fyrir launavinnslu.

Kostir:

  • Lítill byrjunarkostnaður
  • Einfalt í notkun (inn- útstimplun)
  • Spjöld með skráningum (ekki rafrænt)

Gallar:

  • Mikil vinna við úrvinnslu skráninga
  • Spjöld með skráningum (ekki rafrænt)
  • Starfsmenn geta stimplað hvorn annan inn/út
Categories
Stimpilklukkur

Hvernig fer skráning fram?

Einfaldasta tækið til skráningar inn og úr vinnu er á myndinni hér fyrir neðan:

pappirblyantur

Já, það þarf ekkert fleira til að skrá sig inn og úr vinnu!

Reyndin er hinsvegar sú að ráðlegast er að nota aðrar aðferðir sem skila meiri nákvæmni. Það er á endanum hagur bæði starfsfólks og vinnuveitanda.

Categories
Stimpilklukkur

Hvað er stimpilklukka?

Stimpilklukka er orð sem notað er yfir tæki sem hægt er að nota til að skrá sig inn og út úr vinnu.

Að kalla slíkt tæki stimpilklukku getur verið svolítið villandi í dag þar sem margar af þeim lausnum sem í boði eru vinna á allt annan hátt en gömlu góðu stimpilklukkurnar gerðu (og gera enn).

Orðið sjálft, stimpilklukka, varð til þar sem skráningartækin sjálf voru oftar en ekki klukkur, hangandi á vegg.

Skráningarferlið:

Starfsmaður skráir sig inn til vinnu þegar mætt er og út aftur þegar hætt er. Oft er líka skráð þegar farið er í matartíma eða jafnvel skráð inn í mismunandi verkefni (verkskráning).